Lína og Þinur eru mjög góðir vinir sem elska að kúra saman.
Eins ólíkir karakterar og þau eru, ná þau alveg ofboðslega vel saman. Lína er svolítið feimin og finnst voða gott að leita skjóls inn í húsið sitt, meðan Þinur er mun frakkari og forvitnari. Hann tekur reglulega upp á því að fara í vettvangsferðir í nærumhverfi sínu þegar gerðið er skilið eftir opið fyrir þau og er mjög skemmtilegt að fylgjast með honum. Meðan hann gerir það fylgist Lína með úr öruggri fjarlægð.
Þegar Lína finnur til meira öryggis er hún meira úti í gerðinu, tekur því rólega þar, borðar og leikur sér. Þegar hún fer að treysta manni er hún duglegri að koma til manns að fá góðgæti og fylgjast með. Hún er hins vegar ekki mikið fyrir að fá klapp, annað en vinur sinn hann Þinur. Honum finnst voða gott að láta klappa sér og hann elskar að fá (kanínu)nammi (grænmeti og ávexti). Stundum er hann það spenntur að sjá mann að hann hreinlega skríður í fangið á manni til að fá klapp og góðgæti.
Þessir kanínuvinir eru bæði ósköp mikil krútt sem gaman er að fylgjast með og dekra við. Þau eiga skilið frábært heimili þar sem þau fá bæði athyglina og friðinn sem þau þurfa.
ATH: Það að vera á fósturheimili Dýrahjálpar þýðir að dýrið er í umsjá Dýrahjálpar. Dýrahjálp tekur ákvörðun um framtíðarheimili með aðstoð fósturheimilis. Öll dýr sem eru í umsjá Dýrahjálpar eru geld, örmerkt, bólusett og ormahreinsuð eins og er viðeigandi fyrir hverja dýrategund.
Athugið að einungis verður haft samband við þá umsækjendur sem koma til greina og henta dýrinu. Því er mikilvægt að gefa meiri en minni upplýsingar í umsókninni.