Pjakkur er fæddur í júlí 2022, hann er algjör prakkari og mjög mikið matargat. Hann ELSKAR banana, það er lang uppáhalds nammið hans. Hann hatar ryksugur og að fara til dýralæknis, fer síðan í feita fýlu þegar hann kemur heim.
Það má stundum klappa honum, en bara þegar honum langar það og ef þú ert með nammi í hendinni. Hann er líka smá sóði, finnst gaman að hlaupa með hey í kjaftinu og dreyfa því út um allt.
Annars er hann mjög forvitinn en samt hræddur, hann skoðar ekkert nema að Zazú komi með honum. Þá má líka ekkert vera á gólfinu því annars er Pjakkur búinn að gata það, hann nagar allt, og þá meina ég ALLT.
Hann er ótrúlega fyndinn karakter og drama drottning. Ef það kemur gestur sem hann fýlar ekki þá fer hann á bakvið sófa að stappa. Hann elskar þegar hann fær kál að borða og þegar það er ekki komið kál á diskinn á slaginu er hann farinn að draga diskinn út um allt.
Bólusettur
Geldur
ATH: Það að vera á fósturheimili Dýrahjálpar þýðir að dýrið er í umsjá Dýrahjálpar. Dýrahjálp tekur ákvörðun um framtíðarheimili með aðstoð fósturheimilis. Öll dýr sem eru í umsjá Dýrahjálpar eru geld, örmerkt, bólusett og ormahreinsuð eins og er viðeigandi fyrir hverja dýrategund.
Athugið að einungis verður haft samband við þá umsækjendur sem koma til greina og henta dýrinu. Því er mikilvægt að gefa meiri en minni upplýsingar í umsókninni.