Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls 8,106 dýr í heimilisleit.

Bella

1 árs hundur, 101 Reykjavík

Bella er glaðasti hundur í heimi.
Hún elskar gott kúr og finnst henni skemmtilegast að fara á hundasvæði og hitta aðra hunda.

Hún er vön börnum og kisum.

Hún er frekar hljóðlát en getur verið pínu stressuð í kringum karlmenn því síðasti eigandi var ekki góður við hana.

Hún er mín besta vinkona og finnst mér mjög erfitt að gefa hana frá mér en ég er að flytja og get ekki tekið hana með mér.

Hún er blanda af labrador og border collie.

  Vön börnum

  Vön kisum

  Vön hundum

  Bólusett

  Skráð

Heilsufar: Hún er heilsuhraust.

Fylgir: Beysli, matardallar og dót.

Athugið að þetta dýr er ekki í umsjá Dýrahjálpar. Dýrið er enn hjá eiganda sínum sem tekur ákvörðun um framtíðarheimili. Eigandi fær umsóknina til sín og ber ábyrgð á að vera í sambandi við umsækjendur, ekki Dýrahjálp. Öll dýr auglýst á heimasíðu Dýrahjálpar eru gefins.

Allar frekari upplýsingar um dýrið fást einungis með því að sækja um dýrið og vera í sambandi við eigandann.

 

Senda umsókn