Þula er þriggja ára hreinræktaður íslenskur fjárhundur. Það er með gífurlegum trega að við þurfum að leita að nýju heimili handa henni. Hún er alveg óskaplega elskulegur hundur, vill helst sitja í fangi eigandans og vera með honum öllum stundum. Eins dásamlegt og það er er þetta miður einnig hennar helsti ókostur því það er ekki hægt að skilja hana eftir eina, hvort sem er heima eða í bílnum. Við höfum reynt ýmislegt til þess að vinna bug á þessu svo sem atferlisþjálfun og lyfjameðferð en það hefur ekki borið árangur. Vonandi gæti nýr eigandi sem hún væri ekki jafn háð náð betri árangri með hana. Aðstæður hafa breyst þannig að vinna kallar nú á að við séum fjarri heimilinu part úr degi. Við höfum verið með Þulu í daggæslu á meðan, en það er ekki lausn til langframa. Draumurinn væri að hún gæti komist í sveit þar sem væru fleiri hundar sem hún gæti bondað við og verið með öllum stundum. Hún er vön börnum, köttum (en á það til að elta þá í byrjun) og elskar alla hunda. Þetta er yndislegasta og blíðasta dýr sem ég hef kynnst, en því miður tókst bara ekki að þjálfa hana upp í að vera eina.
Vön börnum
Vön kisum
Vön hundum
Bólusett
Skráð
Heilsufar: Hún er mjög heilsuhraust.
Fylgir: Bæli, matardallar og taumar.
Athugið að þetta dýr er ekki í umsjá Dýrahjálpar. Dýrið er enn hjá eiganda sínum sem tekur ákvörðun um framtíðarheimili. Eigandi fær umsóknina til sín og ber ábyrgð á að vera í sambandi við umsækjendur, ekki Dýrahjálp. Öll dýr auglýst á heimasíðu Dýrahjálpar eru gefins.
Allar frekari upplýsingar um dýrið fást einungis með því að sækja um dýrið og vera í sambandi við eigandann.