Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls 8,106 dýr í heimilisleit.

Mía

4 ára hundur, 310 Borgarnesi

Mía er 4 ára border collie/ íslenskur fjárhundur. Hún er algjör orkubolti og elskar að hlaupa og leika, best væri fyrir míu að búa í sveit eða einhverstaðar sem hún fær að vera svolítið frjáls og fær næga hreyfingu. Hún er vön börnum en það væri betra ef það væru ekki ung börn á heimilinu. Hún er alveg vön að vera ein heima en á aðeins erfitt með að vera skilin eftir. Er ekki vön búri nema í bíl. Geltir svolítið sérstaklega þegar það er einhver að koma. Er með lítið hjarta og er pínu smeik við ketti. Er eitthvað vön hundum en hefur aldrei búið með öðrum hundi. Mía leitar að nýju heimili þar sem eigandinn hefur ekki nægan tíma fyrir hana.

  Vön börnum

  Vön öðrum dýrum: Hefur mikið umgengst hesta.

  Bólusett

  Skráð

Heilsufar: Er heilsuhraust, það var keyrt yfir hana fyrir 2 árum og þurfti að taka mjaðmakúluna. Er pínu skökk en ekkert sem hrjáir hana lengur

Fylgir: Leikföng, bæli, matardallar og taumar

Athugið að þetta dýr er ekki í umsjá Dýrahjálpar. Dýrið er enn hjá eiganda sínum sem tekur ákvörðun um framtíðarheimili. Eigandi fær umsóknina til sín og ber ábyrgð á að vera í sambandi við umsækjendur, ekki Dýrahjálp. Öll dýr auglýst á heimasíðu Dýrahjálpar eru gefins.

Allar frekari upplýsingar um dýrið fást einungis með því að sækja um dýrið og vera í sambandi við eigandann.

 

Senda umsókn