Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls 8,106 dýr í heimilisleit.

Loki (á fósturheimili Dýrahjálpar)

6 ára hundur, 105 Reykjavík

Loki er fæddur í nóvember 2018 og er af tegundinn standard schnauzer.

Hann er gullfallegur og skartar nú skemmtilegri schnauzer klippingu en hefur hann verið rosa góður og meðfærilegur hjá hundasnyrtinum.

Fór hann í heilsufarsskoðun og kom í ljós að hann er með vanvirkan skjaldkirtil og mun þurfa að vera á lyfjum við því ævilangt. Það hafði mikil og góð áhrif á hann að byrja á þeim lyfjum og varð jákvæðara og hressara yfirbragð á honum í kjölfarið.

Hann er tegundatýpískur svo það leynist varðeðli í honum þar sem hann lætur vita af ósækilegum umgangi. Hann er fluggáfaður og mikill matgæðingur svo fyrir góðan nammibita er hann tilbúinn að gera ýmislegt en vinna þarf með honum á hans forsendum. Eingöngu hafa verið notaðar jákvæðar þjálfunaraðferðir sem hann er mjög móttækilegur fyrir og með þeim aðferðum hefur hann sýnt góðar framfarir á núverandi fósturheimili.
Unnið hefur verið í því að venja Loka við að vera einn heima og gengur það vel og hefur hann getað verið einn heilan vinnudag, sérstaklega ef lítið er um áreiti í kringum húsið.

Loki er "reactívur" í taumi og geltir á fólk, hunda og annað sem hreyfist hratt í göngutúrum, hann er samt góður með hundum þegar hann hittir þá í nágvígi. Verið er að vinna í því með hundaatferlisþjálfara og mun sú vinna þurfa að halda áfram með nýjum eiganda.

Hann tekur sinn tíma að kynnast fólki og treysta því en þegar búið er að vinna inn hans traust þá kemur í ljós skemmtilegur og fyndinn hundur sem elskar fólkið sitt rosa fast.

Loki er geldur og leitar að rólegu og stöðugu heimili þar sem honum er sýnd þolinmæði. Þarfnast hann umhverfis án mikils áreitis án barna undir 14 ára og í mesta lagi einn rólegur hundur. Ákjósanlegt er að vera með reynslu af hundum.

  Vanur öðrum dýrum: Hann er vanur hundum en hann þyrfti helst að fá heimili án mikils áreitis. Hann hentar alls ekki með köttum eða smádýrum.

  Bólusettur

  Geldur

Heilsufar: Hann er á c/d fæði vegna kristalla í þvagi sem hann mun þurfa vera áfram á.

ATH: Það að vera á fósturheimili Dýrahjálpar þýðir að dýrið er í umsjá Dýrahjálpar. Dýrahjálp tekur ákvörðun um framtíðarheimili með aðstoð fósturheimilis. Öll dýr sem eru í umsjá Dýrahjálpar eru geld, örmerkt, bólusett og ormahreinsuð eins og er viðeigandi fyrir hverja dýrategund.

Athugið að einungis verður haft samband við þá umsækjendur sem koma til greina og henta dýrinu. Því er mikilvægt að gefa meiri en minni upplýsingar í umsókninni.

 

Senda umsókn