Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls dýr í heimilisleit.

Ættleiðingardagur 3.desember

30 Nóv 2011

Á laugardaginn 3. desember verður Dýrahjálp með síðasta ættleiðingardag ársins 2011. Þar verða nokkrar kisur og kanína í heimilisleit og öllum er velkomið að koma og kíkja á molana okkar.
Að venju verðum við í Dýraríkinu í Holtagörðum frá 13-17.

Bestu kveðjur
Dýrahjálp Íslands