Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls dýr í heimilisleit.

Fyrirlestur um atferli og þjálfun hunda

23 Nóv 2010

Dýrahjálp mælir eindregið með þessu námskeiði. Frábært fyrir hundaeigendur og aðra hundaáhugamenn sem vilja bæta við þekkingu sína.

Freyja Kristinsdóttir, dýralæknir og hundaþjálfari og Sif Traustadóttir, dýralæknir og atferlisfræðingur munu halda fyrirlestur um atferli og þjálfun hunda sunnudaginn 28. nóvember kl. 13.00. Síðasta vor var haldinn svipaður fyrirlestur og fékk hann frábærar viðtökur.
Fyrirlesturinn verður haldinn í Icepharma, Lynghálsi 13, 110 Reykjavík (gengið er inn um aðalinngang). Fyrirlestrinum er lokið um kl. 14:30 og verður þá tími til að svara spurningum. Aðgangseyrir er 1.000 kr (ath. eingöngu tekið við staðgreiðslu, þ.e. engin kort).