Heim » Týnd / Fundin

„Dýrið mitt er týnt, hvert get ég snúið mér?“

Ef þú týnir gæludýri þínu af einhverri ástæðu er ýmislegt sem þú getur gert til þess að reyna að finna það. Gott er að hringja í lögregluna og láta skrá að þú sért að leita að týndu gæludýri. Svo væri etv hægt að hafa samband við dýralækni á því svæði sem dýrið týndist, sérstaklega ef það er örmerkt. Það er líka hægt að setja auglýsingar á netið í mbl.is og visir.is; jafnvel í prentuð blöð. Svo eru ýmsir spjallþræðir etv góð leið. Má þar nefna barnaland.is, dyraland.is, tritla.is, hundaspjall.is, hvuttar.net ofl.

Kittý er týnd

Kittý hefur ekki komið heim í síðan 12 júlí ,hún býr í klapparbergi 9 111 reykjavík Hún er svört með hvítar loppur og hvíta skellu á bringunni ...hún er með mjög sértakt skott það hringast eins og á islenskum fjárhundi :) hún er fíngerð ljúf ...

Lúlli laukur er týndur

Lúlli laukur hvarf frá heimili sínu(tunguvegur 17) þann 18,07,2010. Hann er 3 ára, bröndóttur og hvítur, hann er með smá skarð í vinstra eyra. Hann er með svarta ól með silfurlituðum hjörtum og blát merkispjald. Hann er geldur og frekar kellinn, hann á það til ...

Kikkelane er týndur

Hvítur og ljósgulbrúnn (beigelitaður) fressköttur með bröndótt skott hvarf þriðjudagskvöldið 29. júní frá Flókagötu 69, 105 R. Hann er 8 ára gamall en ennþá forvitinn og gæti hafa lokast inni í bílskúr eða geymslu. Kikkelane er geltur, með appelsínugula endurskinshálsól (sem hann gæti hafa týnt) ...

Snúsi er týndur

Snúsi var í pössun í Flatahverfinu í Garðabæ en á heima í Vogahverfi í Reykjavík. Hann hefur ekki sést síðan 19. júlí. Hann er svartur og hvítur 4 ára geltur fress. Hann var með rauða ól. Hann er með eins og hvítt yfirvaraskegg.

Kisa er týnd

Yrjótt 1 árs læða týndist frá Álfaborgum 15 í grafarvogi miðv.d. 21/7 2010 er innikisa, lítil og grönn. Ómerkt. Mjög líklegt að hún hafi bara farið og vælt fyrir utan hjá einhverjum hér í hverfinu.

Nala er týnd

Ég á þriggja mánaða læðu (heitir Nala) sem er týnd og ómerkt og hún er mjög sérstök á litin. Hún týndist sunnudaginn 18. júlí 2010 úr Vesturbergi í Breiðholti og hún var búin að missa hálsólina af sér því ég fann hana í garðinum. Nala ...

Er ekkert merktur er týndur

hann er svartur að ofan ljós að neðan með hvítar augabrýr að gerðinni snáser greinilega búin að vera´týndur í einhverja daga fannst á tjaldstæðinu í skógarnesi v apavatn rétt hjá laugavatni vinsamlegast hringið í 8671569 ef þið vitið hver á þetta krútt

Sæsi á Akureyri er týndur

Sæsi er týndur. Hann er grár og hvítur fress, frekar smávaxin og á sjöunda ári. Hans er mjög blíður og góður og malar frekar hátt. Hann er búin að vera týndur í eitt og hálft ár, nánar til tekið síðan um þar síðustu páska. Við ...

Bella er týnd

Bella er eins árs innikisa sem hefur aldrei farið út nema rétt svo út á svalir. Hún datt út um baðherbergisglugga af annarri hæð í álfholtinu í hafnarfirði sunnudags morguninn 18. júlí. Hún er smávaxin, snögghærð og yrjótt. Hlýðir yfirleitt nafni, þó ekki alltaf. Hún ...

Dísargaukur er týnd

Hún týndist klukkan 10 að kvöldi 9 júlí, við búum á Hlíðarvegi í Kópavogi

Prins er týndur

Hann prins er sárt sakna hann týndist í keflavik nálægt Netto 16 maí hann er svartu og hvitur með áberandi svartan blett á hökunni hann er geldur og örmerktur hjá dýraspitalanum i kef hann er rosalega kellinn og góður köttur ef einhver hefur orðið var ...

Grettir er týndur

Grettir er 10 ára gamall kisi sem býr ú Hjarðarlandinu í mosfellsbæ. Hann er ekki vanur að fara langt í burtu heiman frá sér. Hann týndist fimmtudaginn 10.júní. Hann er rosa vingjarnlegur og kemur til allra. Hann er grábröndóttur með smá brúnt í sér og ...

Moli er týndur

KÓPAVOGUR - TÝNDUR. Moli hvarf frá heimili sínu Klappakór 1a í Kópavogi að morgni laugardagsins 17.apríl 2010. Hann er eins árs og er hálfur skógarköttur og er því frekar loðinn. Hann er svartur á litinn og er með smá hvítt á sér á hálsinum. Hann ...

Þruma er týnd

Hún er svört, hvít og brún læða. Hún er loðin og týndist fyrir sirka ári. Hún fæddist árið 2008 en týndist 2009 og hefur verið týnd síðan. Hún var alla vana með ól þá og á að vera örmerkt. Við sáum hana síðast fyrir um ...

Benni Bú er týndur

Benni Bú er týndur síðan þann 18 mars. Hann hvarf frá Hofteig í 105 rvk. Hann er hálfur persi , ljósgrár, mikið loðinn og geldur. Hann er feiminn. Benni Bú er eyrna og - örmerktur og var með gula ól með gulu merki með upplýsingum, ...

Bimbó er týndur

7 ára gamall border collie, svartur með hvítt í sér. Er með svarta leðuról en ekkert merkt. Hann er alveg einstaklega ljúfur og góður.Hvarf úr Þingvallasveit i nóv. Vona að einhver hafi tekið hann upp í hjá sér og viti hvar hann er niðurkominn. Hans ...

Tumi er týndur

hann er alveg grár, tæplega eins árs. mjög kelin og góður. hans er sársaknað, hann hvarf frá heimili sínu 15.janúar.

Rambó er týndur

Hann hvarf af hemili sínu, á Tjarnabraut 20 í Ynnri Njarðvík, þann 10.jan á sunnud. Hann hefur ekkert skilað sér síðan. Hann er ca 8 mán. kettlingur og er sárt saknað af eiganda og nákomnum. Hann er rosaleg félagsvera, gæfur og mikill fjörkálfur. Ef einhverjar ...

Alvin er týndur

Kötturinn okkar hann Alvin týndist í Garðabæ. Hann hefur ekki sést í síðan 11. des. Alvin er rúmlega ársgamall geldur fress að mestu svartur en með hvítar loppur. Alvin er örmerktur með rauða ól með endurskinsborða og bjöllu á. Við erum búin að leita að ...

Július er týndur

Svartur, gæfur norskur skogakött, merktur og tekinn úr sambandi, græn augu, ljúfur og bliður, hvarf frá Furulundi 3, Garðabær 17 des. Hann er rúmlega eins árs.

Freyja er týnd

Freyja týndist við nýja heimilið sitt að Birkigrund 12 í Kópavogi. Hún er svört og hvít og var með ljósgræna ól með bjöllu á sér þegar hún týndist.

Súmatra er týnd

Læðan mín hún Súmatra hvarf úr Jóruselinu í Breiðholti fyrir nokkrum vikum. Súmatra er þrílit, hvít, gulbrún og svört með svart skott. Hún er loðin, blandaður skógarköttur. Súmatra er örmerkt og búið að taka hana úr sambandi. Hún er frekar hrædd við ókunnuga. Þetta er ...

Stormur er týndur

Stormur, 16mán, hvítur og bröndóttur týndist í Kollafirði ( við Esjuna ) 2. September sl. Uppl; 869-8802 Fundarlaun

Aska er týnd

Aska er 4ra ára læða. Hún er dökk-gráyrjótt með bleika blesu, stór kringlótt augu og stutt skott. Hún var með bleika bráðabirgðaól þegar hún fór út svo hún er ekki merkt nema með örmerki sem er: 352206000047838. Ösku hefur verið saknað síðan 1. ágúst. Við ...

Getur þú séð dýri í neyð fyrir fósturheimili þar til framtíðarheimili finnst?

Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.

Gerast meðlimur

Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.

Sjálfboðastarf

Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.

Áttu dýradót/fóður sem getur nýst Dýrahjálp Íslands?

Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.

Skrá dýr í heimilisleit

Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.

Skrá týnt dýr

Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.

Skrá fundið dýr

Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.