Köttur fannst
Ég auglýsti þennan kisa hér fyrir nokkrum vikum en auglýsingin datt út eftir örfáa daga. Reyni því aftur. Þekkir virkilega enginn eða saknar þessa fallega kisa? Hann hefur haldið sig við sumarbústað í Mosfellsdal síðan í maí a.m.k.
Er alltaf svangur og frekar styggur, en eitthvað segir mér að hann hafi átt betri daga.
Hægt er að nálgast upplýsingar um netfang eða símanúmer finnanda með því að senda tölvupóst á dyrahjalp@dyrahjalp.is
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






