Heim » Týnd / Fundin » Fannst

Skráð dags: 21 Júl 2010

Senda á vin Senda á vin

Senda á Facebook Senda á Facebook

Köttur fannst

Við Hringbraut í vesturbæ Rvíkur og í portinu á bakvið hús er ung (1s árs+) svört og hvít læða á vappi. Ég hef aldrei séð hana áður. Ég náði ekki mynd en minnir að hún sé að mestu hvít með svarta bletti hér og þar, og ofan á höfðinu er fallegt, næstum hjartalaga munstur, svart. Hún mjálmar ámátlega og mér datt í hug að hún væri etv breima ... held samt ekki.

Hún er mjög gæf og athugul, hvæsir og urrar á kisurnar mínar en forðar sér þó ekki, og malar mjög. Hún er í ágætum holdum og ekki að sjá að hún hafi verið á miklu flakki. Ég náði í hana út í garð Hringbrautarmegin því ég var hrædd um hana og fór með hana niður í kjallara (á erfitt með að vera mjög gestrisin við aðrar kisur vegna þess að ég er með kisur), og gaf henni þurrmat og vatn, en hún var allsendis óspennt sem gefur til kynna að hún sé ekkert týnd eða langt frá heimili sínu!

Mér þykir líklegt að hún eigi heima nálægt og sé bara á næturrölti í leit að selskap, en þar sem ég hef ekki séð hana áður og litla hulstrið á hálsólinni með uppl. um hana hefur opnast og miðinn dottið úr, get ég ekki séð hvar hún býr, og því set ég þetta hér.

Hægt er að nálgast upplýsingar um netfang eða símanúmer finnanda með því að senda tölvupóst á dyrahjalp@dyrahjalp.is

Getur þú séð dýri í neyð fyrir fósturheimili þar til framtíðarheimili finnst?

Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.

Gerast meðlimur

Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.

Sjálfboðastarf

Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.

Áttu dýradót/fóður sem getur nýst Dýrahjálp Íslands?

Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.

Skrá dýr í heimilisleit

Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.

Skrá týnt dýr

Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.

Skrá fundið dýr

Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.