Köttur fannst
Það eru tveir kettir, annar er gult fress, mjög fallegur og sæmilega gæfur, kemur inn í gang til að borða á kvöldin en er annars á útigang.
Veit ekki um aldur.
Hinn er styggari bröndóttur með hvítan hægri fót.
Kemur samt í bíslagið á hverju kvöldi að borða.
Held að það sé ung læða en hef ekki komist það nálægt að ég sjái hvort er. En´kötturinn er það nettur að ég held það sé læða.
Bý nálægt sumarhúsahverfi og held þeir séu þaðan komnir, því engin heima bæja er með kött.
hvað þá týndan kött.. Vantar búr til að ná allavega öðrum. Vonast eftir svari. Björg
Hægt er að nálgast upplýsingar um netfang eða símanúmer finnanda með því að senda tölvupóst á dyrahjalp@dyrahjalp.is
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






