Heim » Týnd / Fundin

„Dýrið mitt er týnt, hvert get ég snúið mér?“

Ef þú týnir gæludýri þínu af einhverri ástæðu er ýmislegt sem þú getur gert til þess að reyna að finna það. Gott er að hringja í lögregluna og láta skrá að þú sért að leita að týndu gæludýri. Svo væri etv hægt að hafa samband við dýralækni á því svæði sem dýrið týndist, sérstaklega ef það er örmerkt. Það er líka hægt að setja auglýsingar á netið í mbl.is og visir.is; jafnvel í prentuð blöð. Svo eru ýmsir spjallþræðir etv góð leið. Má þar nefna barnaland.is, dyraland.is, tritla.is, hundaspjall.is, hvuttar.net ofl.

Köttur fannst

Það er lítil kisa sem kom sér fyrir heima hjá mér meðan ég var í burtu í viku og síðan vill hún bara vera hér, er að reyna halda henni úti en hún kemur alltaf inn eða vælir fyrir uan. Virðist mjög ung, enn með ...

Kanína fannst

Fundum þessa kanínu hjá Stóra Helli á Selfossi, hún kom strax til okkar og vildi strax fá smá hjúkrun, rosalega ljúf og góð og alveg yndisleg í alla kanta. Okkur datt í hug að hún hafi hugsanlega sloppið, en annars er hún að leita að ...

Köttur fannst

Svartur kettlingur, ca 3-5 mánaða fannst í Staðarvör í Grindavík 25. júlí. Var mjög svangur þegar hann kom. Ratar örugglega ekki heim því hann kemur alltaf aftur hingað.

Köttur fannst

Ég auglýsti þennan kisa hér fyrir nokkrum vikum en auglýsingin datt út eftir örfáa daga. Reyni því aftur. Þekkir virkilega enginn eða saknar þessa fallega kisa? Hann hefur haldið sig við sumarbústað í Mosfellsdal síðan í maí a.m.k. Er alltaf svangur og frekar styggur, en ...

Köttur fannst

Grá læða með smá hvítanblett á hálsi og er ketlingafull mjög gæf og ekkert merkt

Hundur fannst

Var að labba úr breiðholtinu rétt hjá krónunni og þá kemur hundur hlaupandi til mín og eltir mig heim, held þetta sé golden retriever eða labrador

Köttur fannst

Kisa fannst á Skólavörðustíg, frekar smá lítur út eins og kettlingur er grá og gul bröndótt. Fór með kisu til dýralæknastofu Dagfinns á Skólavörðustíg, það var hægt að hafa hana þar í nótt ekki lengur.

Köttur fannst

Við Hringbraut í vesturbæ Rvíkur og í portinu á bakvið hús er ung (1s árs+) svört og hvít læða á vappi. Ég hef aldrei séð hana áður. Ég náði ekki mynd en minnir að hún sé að mestu hvít með svarta bletti hér og þar, ...

Köttur fannst

Grábröndóttur mikið loðinn fullorðin köttur, líklega fress, kemur reglulega að húsi mínu í Hveragerði. Hann er illa farinn í feldinum og greinilega orðin útigangur, alltaf svangur og biður sárlega um að borða. Hann er ómerktur og frekar gæfur við okkur eftir að við gáfum honum ...

Köttur fannst

hvítur og svartur með rauða ól, hefur verið málmhólkur með miða en neðri hlutinn af hólknum og miðinn farinn. eyrnamerktur, virðist vera 20078 er að flækjast á ´Bræðraborgarstíg, Ásvallagötu við verkamannabústaðina.

Köttur fannst

Gulur og hvítur fress (ógeldur og ómerktur) er búinn að vera í einhvern tíma á flakki við Goðatún í Garðabæ. Ef einhver kannast við hann og er að leita að honum þá er velkomið að hafa samband við mig.

Köttur fannst

Grá og hvít, stór og pattaraleg kisa er búin að vera við húsið mitt við Drekavelli í Hafnarfirði og í hrauninu í nokkrar vikur. Kannast eh við að hafa tapað henni? kv, Ásta

Getur þú séð dýri í neyð fyrir fósturheimili þar til framtíðarheimili finnst?

Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.

Gerast meðlimur

Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.

Sjálfboðastarf

Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.

Áttu dýradót/fóður sem getur nýst Dýrahjálp Íslands?

Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.

Skrá dýr í heimilisleit

Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.

Skrá týnt dýr

Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.

Skrá fundið dýr

Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.