Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls dýr í heimilisleit.

Vilt þú vera hluti af nýju og stærra teymi Dýrahjálpar?

31 Ágú 2014

Kæru vinir,

Dýrahjálp Íslands er nú að leita að dýravinum sem vilja vinna gríðarlega gefandi sjálfboðaliðastarf með félaginu. Við viljum styrkja grunninn í starfinu með því að bæta við nokkrum aðilum í mismunandi störf. Hér að neðan eru lýsingar á þremur skilgreindum störfum innan félagsins sem við þurfum að fylla.

1. Umsjónaraðili fósturdýra
Dýrahjálp Íslands leitar þessa dagana að framtakssömum dýravinum sem vilja verða hluti af sjálfboðaliðateymi okkar sem heldur utan um fósturdýr og fósturheimili.
Ef þú hefur tíma aflögu og vilt sinna gríðarlega gefandi og krefjandi sjálfboðaliðastarfi þá endilega sendu viðeigandi upplýsingar um þig á atburdahopur@dyrahjalp.is. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Starfsemi Dýrahjálpar snýr að því að finna heimili fyrir dýr sem vantar heimili. Vanalega eru dýrin hjá eigandanum þar til heimili finnst í gegnum heimasíðuna okkar.
Í neyðartilfellum, ef heimili finnst ekki fyrir þann tíma sem eiganda gefst til að finna heimili þá bjóðum við upp á það að taka dýrið á eitt af fósturheimilum okkar. Dýrahjálp tekur frá þeim tíma alla ábyrgð á dýrinu, við sjáum til þess að dýrið fari í heilsufarsskoðun og ófrjósemisaðgerð og bíðum eftir því að hentugt heimili býðst til frambúðar.
Dýrahjálp vantar núna nokkra aðila til að aðstoða fósturdýrin og fósturheimilin okkar.
Hver aðili mun bera ábyrgð á ákveðnum dýrum og fylgir þeim frá því þau koma til okkar þar til að dýrin eru komin á framtíðarheimili sín.
Tíminn sem fer í að sé um fósturdýrin er mjög misjafn eftir misserum og dýrum. Hvert dýr þarf þó fulla athygli umsjónarmanns meðan dýrið er í umsjá Dýrahjálpar.

Verkefnin snúa meðal annars að eftirfarandi
•Sækja fósturdýr frá eigandanum (á höfuðborgarsvæðinu) og koma því til fósturheimilisins
•Sjá til þess að samningar séu undirritaðir, flokkaðir og frágengnir skv. reglum Dýrahjálpar
•Tryggja að fósturheimilið sé með allt sem þarf til að sjá um dýrin
•Sjá til þess að fósturheimilin fari með fósturdýr í læknisskoðun, geldingu, örmerkingu og bólusetningu (allur dýralæknakostnaður er greiddur af Dýrahjálp)
•Sjá til þess að fósturheimili mæti á ættleiðingardag Dýrahjálpar sem að jafnaði er haldinn einu sinni í mánuði
•Bera ábyrgð á að allar upplýsingar um fósturdýr séu settar inn í tölvukerfi Dýrahjálpar og að dýr séu auglýst á heimasíðunni
•Taka viðtal við umsækjendur um fósturdýr og ganga frá samningum og öðru þegar fósturdýr er komið með nýtt heimili
•Önnur tilfallandi verkefni vegna dýra sem eru á ábyrgð umsjónarmanns

Reynsla og hæfniskröfur
•Góð reynsla og mikill áhugi á dýrum
•Tími til að geta sinnt þeim dýrum sem viðkomandi ber ábyrgð á
•Geta sýnt frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
•Skipulagshæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
•Góð íslenskukunnátta og góð tölvukunnátta
•Aðgengi að tölvu og interneti

2. Umsjón með markaðs- og sölumálum Dýrahjálpar
Dýrahjálp Íslands leitar þessa dagana einnig að aðila sem hefur áhuga á markað- og sölumálum og hefur áhuga á að starfa með Dýrahjálp. Ef þú hefur tíma aflögu og vilt sinna gefandi og krefjandi sjálfboðaliðastarfi þá endilega sendið upplýsingar um ykkur á atburdahopur@dyrahjalp.is merkt “Markaðsstarf”. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Verkefni umsjónarmanns markaðsmála snúa meðal annars að því að sinna markaðssetningu vefverslunar og umsjón með henni og að sjá alfarið um jólakort og dagatöl félagsins sem eru mjög stór þáttur í fjáröflun félagsins.
Þetta eru þau verkefni sem liggja fyrir og gerum við ráð fyrir að þetta hlutverk innan Dýrahjálpar muni vera mótað með þeim aðila sem tekur þetta að sér. Tíminn sem fer í þetta sjálfboðaliðastarf er ekki ljóst þar sem þessum hlutverkum hefur verið skipt á milli nokkurra aðila innan félagsins á síðustu misserum. Við gerum þó ráð fyrir því að þetta geti orðið nokkuð tímafrekt, þar sem við stefnum á að vefverslun Dýrahjálpar muni verða efld á næstu misserum með tilkomu þessa nýja starfs.

Reynsla og hæfniskröfur
Umsjónarmaður markaðsmála þarf að hafa áhuga á markaðs- og sölumálum, hafa skipulagshæfileika og vera góður í mannlegum samskiptum. Við krefjumst þess að viðkomandi hafi góða þekkingu á excel, góða íslenskukunnáttu og hafi almennt góða þekkingu á tölvum.

3. Umsjón með almennu sjálfboðaliðastarfi
Ef þú hefur tíma aflögu og vilt sinna þessu skemmtilega sjálfboðaliðastarfi þá endilega sendið upplýsingar um ykkur á atburdahopur@dyrahjalp.is merkt “Umsjón með almennu sjálfboðaliðastarfi”. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.
Verkefni umsjónarmanns sjálfboðaliðastarfs snúa meðal annars að því að hald utan um skráða sjálfboðaliða og skipuleggja atburði félagsins.
Verkefni umsjónarmanns sjálfboðaliðastarfs er unnið náið með stjórn félagsins og verða verkefnin mótuð með þeim aðila sem tekur þetta að sér. Tíminn sem fer í þetta sjálfboðaliðastarf verður nokkuð mikill til að byrja með, þar sem viðkomandi mun kynnast allri starfsemi félagsins og mun svo í framhaldinu geta stýrt tímanum sem fer í starfið og skipulag þess í samvinnu við stjórn félagsins.

Reynsla og hæfniskröfur
Umsjónarmaður markaðsmála þarf að hafa skipulagshæfileika og vera góður í mannlegum samskiptum. Það er mikilvægt að viðkomandi sé frjór og hugmyndaríkur einstaklingur. Við krefjumst þess að viðkomandi hafi góða þekkingu á excel, góða íslenskukunnáttu og hafi almennt góða þekkingu á tölvum.