Yrja
Hún Yrja mín er 2ja ára læða, rosalega kelin og góð og búið að taka hana úr sambandi. Ég tók hana að mér því annars hefði henni verið lógað en ég er með 2 aðra ketti sem bara láta hana ekki vera. Það leit út fyrir það í smástund að allir ætluðu að vera vinir en svo snérust mínir bara gegn henni :(
Ég sé bara ekkert annað í stöðunni en að láta hana á annað heimili þar sem henni getur liðið vel greyinu.
Vön börnum: Já
Vön köttum: Já
Vön hundum: Nei
Geld: Já
Aðrar upplýsingar:
Er í Garðinum en ekkert mál að koma henni í bæinn.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






