Lukkuperla
Perla er steingrá með ótrúlega mjúkan feld, hún er afskaplega kelin og vill mikla ástúð. Ég get því miður ekki haft hana lengur þar sem ég vinn mikið og hún fær ekki þá verðskulduðu athygli sem hún þráir svo mikið, væri frábært ef hún kæmist á heimili þar sem eldra fólk hefur tíma til að gefa henni.
Vön börnum: Nei
Vön köttum: Já
Vön hundum: Nei
Heilsufar: hún er í góðu líkamlegu ástandi, en hún er búin að eiga 2 x kettlinga og þarf því að taka hana úr sambandi, hún er mjög nett og á erfitt með meðgönguna og að hafa næga mjólk handa ungviðinu, ég er með hana á pilluni.
Bólusett Já
Skráð: Já
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






