Heim » Dýrin » Kettir » Júlíus Cesar
uploads/julius-cesar_20100305T180953_1.jpg

Zoom Smelltu á myndirnar til að stækka þær

Staðsetning: Hveragerði

Aldur: 6 ára

Skráð dags: 05 Mar 2010

Senda á vin Senda á vin

Senda á Facebook Senda á Facebook

Júlíus Cesar

Júlíus er 6 ára svartur massaður fress. Hann er mjög kelinn en hann vill ráða og vill koma til manns sjálfur (ekki hægt að taka hann upp og kúrast með hann) og malar mikið. Júlíus drekkur bara vatn úr krana og fer þá í langa sturtu með hausinn undir og nýtur þess í botn. Júlíus vantar heimili sem eina gæludýrið því annars verður hann fúll og læðist með veggjum.

Júlíus ólst með systir sinni Kleopötru en fyrir 3 árum þá var systir hans svo frek að hann gat ekki verið hjá okkur lengur og fór þá til ömmu sinnar og er búinn að vera hjá henni í 3 ár en næu er amma hans svo lúin og getur ekki gætt hans lengur. Og viljum við koma honum á gott heimilli í stað þess að lóga honum. Sem hefur ekki komið til greyna hingað til að minni hálfu.

Vanur börnum:

Vanur hundum: Nei

Vanur öðrum: Já en er ekki að njóta sín með öðrum dýrum því hann er smá kvekktur við ágeng dýr. (hunda/ketti)

Heilsufar: Gott heilsufar og vel nærður en ekki feitur frekar sterkbyggður.

Geldur:

Fylgir: Matardall og leikföng og bæli. 2 pokar af mat með líka

Getur þú séð dýri í neyð fyrir fósturheimili þar til framtíðarheimili finnst?

Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.

Gerast meðlimur

Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.

Sjálfboðastarf

Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.

Áttu dýradót/fóður sem getur nýst Dýrahjálp Íslands?

Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.

Skrá dýr í heimilisleit

Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.

Skrá týnt dýr

Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.

Skrá fundið dýr

Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.