Tumi
Tumi er 5 ára útikisi sem þarf að fá nýtt heimili vegna þess að elsti sonur eiganda var að greinast með ofnæmi.
Tumi er geldur og honum fylgir heilsufarsbók frá Dýraspítalanum í Víðidal, hann hefur 4 sinnum fengið bólusetningu gegn kattafári og ormalyf á sama tíma, hann er heilsugóður og skapgóður kisi. Hann er vanur börnum, frá 5 ára og uppúr. Hann er ekki vanur öðrum dýrum á heimilinu, en hefur stundum verið með köttunum í hverfinu.
Hann Tumi er ljúfur og góður köttur, borðar vel og aðeins latari en áður og sefur meira. Hann hefur verið sjálfs síns herra,fer út (um sínar dyr) þegar honum hentar og gerir stykkin sín alltaf úti. Hann veiðir flugur og köngulær en ekki fugla og mýs.
Vanur börnum: Já
Vanur köttum: Já
Vanur hundum: Nei
Vanur öðrum: Hann er ekki vanur öðrum dýrum á heimilinu, en hefur stundum verið með köttunum í hverfinu.
Heilsufar: Tumi er geldur og honum fylgir heilsufarsbók frá Dýraspítalanum í Víðidal, hann hefur 4 sinnum fengið bólusetningu gegn kattafári og ormalyf á sama tíma, hann er heilsugóður og skapgóður kisi.
Bólusettur Já
Geldur: Já
Fylgir: Með Tuma fylgir svefnkarfan hans, matardallar og kattarlúgan hans sem opnast með segli sem hann hefur um hálsinn
Aðrar upplýsingar:
Hann Tumi er ljúfur og góður köttur, borðar vel og aðeins latari en áður og sefur meira. Hann hefur verið sjálfs síns herra, fer út (um sínar dyr) þegar honum hentar og gerir stykkin sín alltaf úti. Hann veiðir flugur og köngulær en ekki fugla og mýs.
Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.
Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.
Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.
Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.
Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.
Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.
Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.






