Heim » Dýrin » Hundar » Birta
uploads/birta_20100308T140846_1.jpg

Zoom Smelltu á myndirnar til að stækka þær

Staðsetning: Akranes og nágr.

Aldur: 2 ára

Skráð dags: 08 Mar 2010

Senda á vin Senda á vin

Senda á Facebook Senda á Facebook

Birta

Birta er æðislega falleg tæplega 2 ára tík (í maí) sem vantar nýtt heimili vegna tímaleysis hjá eiganda. Hún elskar að fá að hlaupa og leika sér en er líka alveg þvílíkt kúrudýr þegar hún er inni. Hefur alltaf verið góð í kringum börn, hefur búið með ketti (þannig það ætti ekki að vera vandamál) Hún er svört með hvíta bringu og hvítar lappir með svörtum doppum á fótunum,og loðin lafandi eyru :)
Hún er blanda af labrador og setter.

Vön börnum:

Vön hundum:

Vön öðrum: Hún hefur búið með ketti, býr núna með annari tík og þeim kemur mjög vel saman. Hún er góð í kringum flest dýr, þarf bara að kynnast þeim á sínum grundvelli.

Heilsufar: Hún á eftir að fara í sprautu á þessu ári en er annars við hestaheilsu, alveg endalaust til í að leika enda rétt komin yfir að vera hvolpur og því fullkominn hundur fyrir fólk sem hreyfir sig mikið, hún er alltaf tilbúin í það :)

Fylgir: Matardallur,vatnsdallur, karfan hennar og búrið hennar þar sem hún er vön að sofa í því allar nætur.

Aðrar upplýsingar:

Hún hefur átt það til að strjúka, ekki oft og alls ekki ef hún fær góða hreyfingu daglega, í þessi örfáu skipti var það vegna þess að hún hafði ekki fengið neina hreyfingu, nema rétt að komast út í garð :/
Hún er yndislegur persónuleiki, góð tík sem á skilið besta heimilið og fer því ekki hvert sem er.

Getur þú séð dýri í neyð fyrir fósturheimili þar til framtíðarheimili finnst?

Sum dýr þurfa nauðsynlega að finna heimili með skömmum fyrirvara og því getur reynst nauðsynlegt að koma því fyrir á fósturheimili þar til finnst varanleg lausn fyrir dýrið.

Gerast meðlimur

Með því að gerast meðlimur þá gengur þú í lið með okkur og segir að þörf sé á dýraathvarfi á Íslandi sem geti tekið við þeim dýrum sem þarfnast nýs heimilis.

Sjálfboðastarf

Atburðahópur stendur fyrir kynningaratburðum til að kynna þar sem við getum komist að, t.d. flóamarkaður, jólaþorpið, hundasýningar þar sem við myndum að öllum líkindum hafa einhver af þeim dýrum með sem eru að leita að heimilum.

Áttu dýradót/fóður sem getur nýst Dýrahjálp Íslands?

Dýrahjálp Íslands tekur alltaf við gjöfum frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi dýradóts eða fóðurs sem verður nýtt fyrir fósturdýrin okkar.

Skrá dýr í heimilisleit

Ath. Því betri upplýsingar sem við höfum, því auðveldara er að finna gott heimili fyrir gæludýrin.

Skrá týnt dýr

Smelltu hér til að skrá tilkynningu um týnt dýr.

Skrá fundið dýr

Fannstu dýr á flakki? Smelltu hér til að skrá tilkynningu.